Superbowl
Úrslitaleikur ameríska fótboltans, Superbowl, er í kvöld. Í venjulegu árferði frumsýna stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna nýjar auglýsingar og þykir mörgum ekki síður skemmtilegt að fylgjast með auglýsingahléum í Ofurskálinni en úrslitaleiknum sjálfum. Það er hins vegar fátt vejnulegt við það árferði sem bandarísk fyrirtæki búa við í dag (og þótt víðar væri leitað!) og hafa nokkrir stórir auglýsendur ákveðið að auglýsa ekki í Ofurskálinni þetta árið. Fed Ex og General Motors verða ekki með auglýsingu í útsendingunni í kvöld, en þessi fyrirtæki hafa undanfarin 10 ár verið einna frekust til auglýsingaplássins í Ofurskálinni.
Þá ákvað Miller bjórframleiðandinn að skera verulega niður. Í stað þess að borga 3 milljónir dala (344 milljónir króna) fyrir 30 sekúndna auglýsingu ákváðu stjórnendur Miller að spara með því að birta auglýsingu í Ofurskálinni sem er aðeins 1 sekúnda að lengd:
Miller setti einnig á vefinn fjölmargar örauglýsingar sem ekki náðu því að komast í sjónvarp:
Þó svo margir auglýsendur haldi þétt utan um veskin sín um þessar mundir þá hefur ekki gengið illa að selja í auglýsingahólfin á Superbowl. Það virðist ekki há auglýsingasölunni verulega að sekúnduverðið hefur aldrei verið hærra, eða 3 milljónir dala fyrir 30 sekúndur eins og áður sagði - um miðjan janúar var búið að fylla í yfir 90% af auglýsingatíma úrslitaleiksins.
Auglýsingar í Superbowl 2009 má sjá hér.