You've added this video with the title
"Superbowl Commercial - High Life 1-second ads that didn't make the cut". To change this title, or add tags or comments,
click here.
Úrslitaleikur ameríska fótboltans, Superbowl, er í kvöld. Í venjulegu árferði frumsýna stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna nýjar auglýsingar og þykir mörgum ekki síður skemmtilegt að fylgjast með auglýsingahléum í Ofurskálinni en úrslitaleiknum sjálfum. Það er hins vegar fátt vejnulegt við það árferði sem bandarísk fyrirtæki búa við í dag (og þótt víðar væri leitað!) og hafa nokkrir stórir auglýsendur ákveðið að auglýsa ekki í Ofurskálinni þetta árið. Fed Ex og General Motors verða ekki með auglýsingu í útsendingunni í kvöld, en þessi fyrirtæki hafa undanfarin 10 ár verið einna frekust til auglýsingaplássins í Ofurskálinni. Þá ákvað Miller bjórframleiðandinn að skera verulega niður. Í stað þess að borga 3 milljónir dala (344 milljónir króna) fyrir 30 sekúndna auglýsingu ákváðu stjórnendur Miller að spara með því að birta auglýsingu í Ofurskálinni sem er aðeins 1 sekúnda að lengd:Miller setti einnig á vefinn fjölmargar örauglýsingar sem ekki náðu því að komast í sjónvarp:Þó svo margir auglýsendur haldi þétt utan um veskin sín um þessar mundir þá hefur ekki gengið illa að selja í auglýsingahólfin á Superbowl. Það virðist ekki há auglýsingasölunni verulega að sekúnduverðið hefur aldrei verið hærra, eða 3 milljónir dala fyrir 30 sekúndur eins og áður sagði - um miðjan janúar var búið að fylla í yfir 90% af auglýsingatíma úrslitaleiksins.Auglýsingar í Superbowl 2009 má sjá hér.
In its never-ending quest to spread common sense and promote value, Miller High Life has opted not to spend $3 million for 30 seconds, and will instead air a one-second ad during the big game. Here are a few 1-second ads that didn't make the cut, and a few outtakes.